Til baka

Matur

Veislur í heimahúsi

Tanja Líf Traustadóttir rekur fyrirtækið AT veisluþjónusta ásamt manni sínum, Arnari Inga Kristensen matreiðslumeistara. Þau sérhæfa sig í veislum sem haldnar eru í heimahúsum. Tanja Líf lumar á góðum ráðum fyrir öll þau sem ætla að halda veislu á næstunni.

Tanja Líf rekur fyrirtækið AT veisluþjónusta ásamt manni sínum Arnari Inga. Hún segir uppsetningu veitinga, sérþarfir gesta og merkingar skipta máli þegar kemur að veisluhaldi.
VeisluborðTanja Líf segir uppsetningu veitinga, sérþarfir gesta og merkingar skipta máli þegar kemur að veisluhaldi.
Mynd: AT veisluþjónusta

„Til að gera framúrskarandi veislu, hvort sem um er að ræða litla veislu eða stærri veislu, þá þarf að vanda valið á veitingunum mjög vel,“ segir Tanja Líf.

Mikilvægt er að gestir upplifi að hugsað sé til þeirra í undirbúningi og að eitthvað standi öllum til boða. „Það þarf að passa að hafa eitthvað fyrir börnin, en líka að hafa þetta ekki of barnvænt þannig að veitingarnar séu bara pizza margarita.“

„Það er ekkert súrara en að vera vegan eða grænmetisæta og geta ekki borðað neitt í veislunni“

Auk þess er gott að vera með á hreinu hvort einhverjir gestir séu með sérþarfir þegar kemur að mat. „Það þarf að taka það inn í reikninginn. Það er ekkert súrara en að vera vegan eða grænmetisæta og geta ekki borðað neitt í veislunni.“

Tanja Líf segir AT veisluþjónustu geta mætt sérþörfum allra enda bjóði þau upp á fjölbreytt úrval, þar á meðal eru blómkálseggjabrauð, parmaskinka, grísa taco og kjúklingaspjót.

Tanja Líf Traustadóttir
Tanja LífHefur rekið veisluþjónustu sem sérhæfir sig í veislum sem haldnar eru heima fyrir.
Mynd: AT veisluþjónusta

Litir og upphækkanir

Þegar kemur að framsetningu skiptir máli að vera með liti og fjölbreytileika á borðinu samkvæmt Tönju Líf. „Við leggjum mikið upp úr því að vera með mismunandi sósur, marineringar, eitthvað í brauðhjúp, sumt bara í kryddi og svo framvegis,“ segir hún.

„Það er lykilatriði að vera með merkingar“

Annað atriði eru upphækkanir. Bæði ýta þær undir fegurð framsetningar og gera gestum kleift að teyja sig yfir borðið án þess að eiga á hættu að fá mat í fötin. „Um leið og þú setur tvo þrjá diska, það þarf ekki meira, á upphækkun, þá verður þetta upplyftandi. Ég veit ekki hvernig á að …

Fáðu áskrift til að lesa

Heimilisblaðið hefur gagnsemi og fegurð að leiðarljósi. Áskrift fæst fyrir aðeins 490 krónur á mánuði.


Kjartan Páll Eyjólfsson EPAL
Hönnun

„Á meðan maður hefur ástríðuna þá heldur maður áfram“

Björn Þór Sigurbjörnsson þjálfari
Heilsa

Reglufesta skiptir mestu máli fyrir heilbrigði