Plantan er sígræn og þrífst vel í heimahúsi við hálfbirtu og skugga en ætti ekki að vera í mikilli sól.
Nú er tími til að fá sér heimilisplöntu, en mörgum finnst svolítið tómlegt eftir jólin þegar ljósin og skrautið sem fylgir þeim er farið. Blómabúðirnar fyllast af heimilisplöntum, oft á tilboðum, og þær prýða heimilin. Sómakólfur, eða Zamiouculcas zamiifolia eins og plantan heitir á latínu, er ein af þeim heimilisplöntum sem hafa notið vinsælda undanfarið og ekki að ástæðulausu. Sómakólfurinn er falleg og smart planta sem auðvelt er að koma fyrir nánast hvar sem er, m.a. í hornum, á skenk og það er langt í frá vandmeðfarið að láta hana þrífast vel. Eins og inniplöntur gera þá tekur sómakólfurinn óæskileg efni úr andrúmsloftinu og hreinsar það.
Uppruni
Sómakólfur er af svokallaðri Araceae-ætt og á uppruna sinn í Austur-Afríku, meðal annars finnst plantan í Malaví, Kenía, Mósambík, Simbabve og Tansaníu og nær útbreiðsla sómakólfsins allt til norðurhluta Suður-Afríku. Plantan er þekkt undir fleiri nöfnum eins og Zansibar-gimsteinn, eilífðarjurt, smaragðspálmi og zuzu-planta. Tegundarnafnið zamiifolia þýðir í raun lauf og er myndað úr nafni úr grasafræðinni zamia og latneska orðinu folium, sem merkir lauf. Plantan er harðgerð og lifir af þurrka vegna vatnsforða sem plantan getur geymt í sekki þar til úrkoma kemur á ný. Plöntunni var lýst í texta tiltölulega snemma á 19. öldinni en árið 1996 hóf hollenskt garðyrkjufyrirtæki að framleiða plöntuna til útflutnings og hafa vinsældir hennar aukist jafnt og þétt síðan.
Heilnæm planta
Heimilisplöntur ættu að vera á hverju heimili. Koltvíoxíð (CO2) finnst víða í kringum okkur, það er meðal annars í gosdrykkjum, í steinum, gangstéttum og malbikuðum götum. Grænar heimilisplöntur taka koltvíoxíð úr andrúmsloftinu en þá losnar í þeim vatn og súrefni myndast. Plönturnar vinna orku úr sólarljósinu til þess að þetta geti gerst, breyta því í súrefni fyrir tilstilli ljóstillífunar, sem er ferlið sem fer fram í grænkornum …





