Hjónin Sveindís Anna Jóhannsdóttir og Arnar Sveinsson eiga þrjár dætur. Fjölskyldan hefur alla tíð verið samrýnd og hafa hjónin lagt áherslu á góðar samverustundir og að vera alltaf til taks. Þá tekst fjölskyldan saman á við áskoranir sem koma upp. Rakkinn Garpur sameinar svo fjölskylduna á sinn hátt.
Hjónin Sveindís Anna Jóhannsdóttir, félagsráðgjafi og framkvæmdastjóri hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar og auk þess formaður Handleiðslufélags Íslands, og Arnar Sveinsson rafvirkjameistari, sem rekur fyrirtækið Rafsmiðjuna ehf., eiga þrjár dætur. Elst er Helga Rós, sem er nýútskrifaður atvinnuflugmaður og er í umsóknarferli fyrir flugmannsstarf en starfar nú sem flugfreyja, á sambýli og í vörukynningum. Edda Sóley er ári yngri og er hún að læra lýðheilsufræði í Danmörku og vinnur á pílustað. Yngst er Ellen María, sem er menntaskólanemi og vinnur á veitingastað. Öll fjölskyldan, nema Edda Sóley, er saman komin í stofunni á heimili fjölskyldunnar. Íslenski rakkinn Garpur heldur sig nálægt fólkinu sínu. Hann er fimm ára gamall og ættaður úr Hnífsdal. Tilefni viðtalsins er að tala um hvað fjölskyldan geri til að styrkja tengslin, skapa góðar stundir og hvað gert er til þess að yfirvinna áskoranir.
Er fjölskyldan samrýnd? „Já, ég myndi alveg segja það,“ segir Sveindís.
„Ég er rosalítið heima,“ segir Helga Rós. „Ég vinn á næturvöktum og svo er ég flugfreyja og er lítið á landinu.“
„Hún býr samt hjá mömmu og pabba í bílskúrnum; og bílskúrnum var fórnað til að búa til íbúðina,“ segir faðir hennar.
Kúpla sig árlega út í Aðalvík
Það hefur alltaf verið nóg að gera á stóru heimili þar sem þrjár orkumiklar stúlkur ólust upp og báðir foreldrar útivinnandi alla tíð. Tvær þeirra fóru í tónlistarnám og allar voru þær virkar í íþróttastarfi. Þegar allir voru heima var lögð áhersla á að fjölskyldan verði tíma saman og þau borðuðu alltaf kvöldmat saman; í seinni tíð hefur verið aðeins minna af því þar sem ekki eru allir heima nú orðið um kvöldmatarleytið.
„Það hefur oft verið spilað,“ segir Sveindís. „Okkur finnst það vera gaman. Við höfum bæði spilað borðspil og eigum töluvert af þannig spilum en einnig spilum við oft Rommý, Kana eða Gaur. Við …




