1
Matur

Fimm réttir í lífi mínu

2
Brúðkaup

Tveggja sólarhringa ferðalag í giftinguna í aftakaveðri

3
Fjármál

Nú gætu óverðtryggðir vextir lækkað

4
Veggurinn

List er mikil menningararfleifð

5
Grein

„Að upplifa allt með mínu besta fólki þótti mér vænst um“

6
Fjármál

Góðar tölur fyrir verðtryggð lán

7
Börn

Fimm ráð fyrir barnaherbergið

8
Húsgögn

Falleg gjöf sem vefur söguna áfram

Til baka

Fjármál

Nú gætu óverðtryggðir vextir lækkað

Stýrivextir Seðlabankans hafa verið lækkaðir um 0,25%. Síðan ekki söguna meir.

Húsnæði Reykjavík
Mynd: Shutterstock

Horfur eru á lækkun óverðtryggðra vaxta í kjölfar þess að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að lækka stýrivexti um 0,25% í morgun. Þetta þýðir að stýrivextirnir fara úr 7,75% í 7,5%.

Ákvörðunin er tiltölulega óvænt. Greiningadeildir Landsbankans og Íslandsbanka höfðu spáð því að vextir yrðu ekki lækkaðir í dag, vegna hækkunar á vísitölu neysluverðs í apríl, meðal annars vegna stöðugrar hækkunar á matvælaverði og húsnæðiskostnaði.

Líklegast er að að vaxtaákvörðun Seðlabankans hafi bein áhrif á húsnæðislán með óverðtryggðum, breytilegum vöxtum. Þeir eru nú háir í sögulegu tilliti. Hæstir eru þeir hjá Íslandsbanka, 9,5%, af stóru lánveitendunum, en 9,39% hjá Arion banka og 9,25% hjá Landsbankanum, þegar horft er til grunnláns.

Bundnir óverðtryggðir vextir hafa hins vegar breyst lítið að undanförnu, en þeir byggja á væntingum á meðaltalsvöxtum á tímabilinu sem bindingin stendur yfir. Þannig býður Íslandsbanki 8,45% fasta, óverðtryggða vexti, Landsbankinn 8,55% og Arion banki 8,3%. Greiningadeild Arion banka hafði spáð vaxtalækkun í dag.

Miðað við orð peningastefnunefndar má gera ráð fyrir því að ekki séu miklar vaxtalækkanir á næstunni.

„Þótt verðbólga hafi hjaðnað og verðbólguvæntingar lækkað síðustu misseri er verðbólguþrýstingur enn til staðar. Þær aðstæður hafa því ekki skapast að hægt sé að slaka á núverandi raunvaxtaaðhaldi peningastefnunnar. Ljóst er að frekari skref til lækkunar vaxta eru háð því að verðbólga færist nær 2,5% markmiði bankans,“ segir nefndin.

Næst ákveður Seðlabankinn stýrivexti 20. ágúst.

Fyrir fólk með verðtryggð lán eru horfurnar hugsanlega lakari. Nú gerir Seðlabankinn ráð fyrir því að verðbólga haldist „nálægt 4% út árið“. Hún muni hins vegar „hjaðna í markmið“, sem er 2,5%. Vextir á verðtryggðu lánin hafa farið hækkandi síðustu misserin og eru algengir breytilegir vextir 5%. Landsbankinn býður þó 4% breytilega vexti. Á einu ári er því 4% verðbólga ígildi þess að raunvextir verðtryggðra lána séu 8% til 9%.



Ísafjörður húsnæði hús Vestfirðir
Fjármál

Góðar tölur fyrir verðtryggð lán

Brúðkaupsblað - Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari
Grein

Þar sem náttúran fær að njóta sín

Úlfar Linnet
Húsgögn

Falleg gjöf sem vefur söguna áfram