
Þau Björn Rúnar Egilsson, dósent á Menntavísindasviði við HÍ, og Hrafnhildur L. Runólfsdóttir, læknir á Landspítala, gengu í hjónaband árið 2007. Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni þar sem séra Hjálmar Jónsson gaf þau saman, en frænkur brúðhjónanna voru brúðarmeyjar og bróðir Hrafnhildar hringaberi. Fiðlukennari Hrafnhildar, Árni Arinbjarnarson, lék á orgel og söngkvartett var skipaður fjölskyldu og vinum. Falleg tónlist var við athöfnina en eftir hana var haldið í Iðnó þar sem veislan var, haldnar ræður og dansað við lifandi tónlist fram á nótt.
Myndar fallega heild
Veggirnir í stofunni hjá Birni og Hrafnhildi eru nokkrir og litlir en einn veggurinn myndar fallega heild með málverki og hillum, meðal annars með listaverkabókum, og maður skynjar vegginn sem nokkurs konar aðalvegg.
Hvað getið þið sagt mér um þetta verk sem er á veggnum?
„Þetta er verk eftir Pétur Gaut myndlistarmann sem hann málaði árið 2007.
Verkið er nokkuð dæmigert fyrir listamanninn – uppstilling af könnu, appelsínu og plómu. Leikur að ljósi og skugga með fallegum tónum,“ segja þau.
Listaverkið var gjöf frá foreldrum Hrafnhildar. Vitið þið af hverju þetta verk varð fyrir valinu sem brúðargjöf? „Þau höfðu farið í miðbæ Reykjavíkur á menningarnótt, viku fyrir brúðkaupið, þar sem Pétur Gautur var með opið hús á vinnustofunni sinni. Þar sáu þau þetta verk og féllu fyrir því,“ segir Björn.
Dýrmætar brúðargjafir sem juku áhugann á myndlist
Þið fenguð töluvert af myndlist í brúðargjöf og ég sé að þið eruð með bækur um myndlist í hillunum, vakti það áhuga ykkar eða jók það áhugann á myndlistinni að fá þessar gjafir? „Ég tók áfanga í listasögu í Menntaskólanum í Reykjavík og heillaðist mjög.
Helgi Ingólfsson kenndi mér og þessar tvær kennslustundir á föstudögum urðu hápunktur vikunnar. Eftir MR ferðuðumst við Björn víða og leituðum meðal annars uppi ýmis verk og byggingar sem ég hafði …