Til baka

Matur

Hafrapönnukökur

Harpa Lind Hjálmarsdóttir er með vinsælli áhrifavöldum á Íslandi og heldur úti hlaðvarpinu Sirpan. Ein af hennar uppáhaldsuppskriftum eru hafra pönnukökur. „Þetta er eitthvað sem ég fæ mér mjög reglulega í morgunmat, og er dugleg að stækka uppskriftina svo aðrir geti notið þeirra með mér,“ segir hún.

Hafrapönnukökur
HafrapönnukökurEinföld uppskrift sem er auðvelt að stækka.
Mynd: Harpa Lind Hjálmarsdóttir

Harpa Lind Hjálmarsdóttir er með vinsælli áhrifavöldum á Íslandi og heldur úti hlaðvarpinu Sirpan. Ein af hennar uppáhaldsuppskriftum eru hafra pönnukökur. „Þetta er eitthvað sem ég fæ mér mjög reglulega í morgunmat, og er dugleg að stækka uppskriftina svo aðrir geti notið þeirra með mér,“ segir hún.

Einföld uppskrift sem hentar vel fyrir einn: 

1/2 banani 

1 dl hafrar 

2 egg 

Vanilludropar 

Hnífsoddur salt 

1/4 tsk. lyftiduft (má sleppa)

Harpa Lind Hjálmarsdóttir
Harpa LindEr með rúmlega tíu þúsund fylgjendur á Tiktok. Hún deilir reglulega skemmtilegum uppskriftum en hafrapönnukökurnar eru í miklu uppáhaldi.
Mynd: Aðsend

Öll hráefnin eru sett í blandara og blandað saman, úr því verður deig sem leyft er að standa í smá stund (u.þ.b. 3 mín.) til að hafrarnir fái tækifæri til að drekka í sig smá vökva. Ef deigið er enn þá of þunnt þá er sniðugt að bæta við smá höfrum til viðbótar. Ef deigið er of þykkt þá er sniðugt að setja smá mjólk í það. 

Deiginu er síðan hellt á pönnu sem er við vægan hita, hægt að gera eina risastóra pönnuköku, eða nokkrar minni. Þegar það fara að myndast loftbólur í deiginu er kominn tími á að snúa pönnukökunum.

Mér finnst best að toppa þær með jarðarberjasultu, hnetusmjöri og jafnvel ferskum jarðarberjum. 

Fáðu áskrift til að lesa

Heimilisblaðið hefur gagnsemi og fegurð að leiðarljósi. Áskrift fæst fyrir aðeins 490 krónur á mánuði.


Áslaug Magnúsdóttir / Innlit / _DSF1186
Innlit

Reykjavík, Svefneyjar og Miami

Helga Sigurbjarnadóttir innanhúsarkitekt
Innanhússhönnun

Trendin verða tengd náttúrunni

Kjartan Páll Eyjólfsson EPAL
Hönnun

„Á meðan maður hefur ástríðuna þá heldur maður áfram“