1
Grein

5 ráð fyrir umhirðu garðplanta

2
Fjármál

Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin

3
Veggurinn

Það skiptir öllu máli að hafa fallega list í kringum sig

4
Grein

„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

5
Grein

„Hver dagur er gleði“

6
Grein

Fæ mikið út úr því að hjálpa fólki

7
Grein

Ánægður garðeigandi einkennir góðan garð

8
Grein

Pelargónía hreinsar loft og kryddar kökur

Til baka

Matur

Einfaldasti kjúklingarétturinn

Þessi réttur er svo einfaldur í eldun, mætti nánast segja að hann eldi sig sjálfur.

Uppskrift: Kjúklingaréttur
  • 1 msk. olía
  • 3–4 kjúklingabringur 750 g
  • 2–3 hvítlauksrif
  • 100 g sólþurrkaðir tómatar 10–12 stk.
  • 360 g risotto hrísgrjón
  • 900 ml kjúklingasoð eða vatn og 2 kjúklingateningar
  • 200 ml matreiðslurjómi
  • 1 tsk. salt, pipar, hvítlaukskrydd, paprikukrydd og timían
  • fersk basilíka skorin niður og sett yfir hvern disk
  • parmesan-ostur yfir réttinn

Byrjaðu á því að skera kjúklinginn í bita, steikja upp úr olíunni og steikja hann í gegn. Kjúklingurinn er kryddaður með salti, pipar, hvítlauk og timían. Skerðu sólþurrkuðu tómatana í bita ásamt hvítlauknum, bættu þessu tvennu út á pönnuna og steiktu áfram í um 2 mínútur.

Helga Magga
Helga Magga næringarþjálfari.

Hrísgrjónunum er svo bætt út á pönnuna ásamt kjúklingasoðinu. Blandaðu þessu saman, settu lok á og láttu þetta malla á miðlungs hita í um 20 mínútur. Gott að hræra einu sinni í þessu eftir um 10 mínútur. Þegar 20 mínútur eru liðnar ættu hrísgrjónin að vera soðin. Blandaðu þá matreiðslurjómanum út í réttinn og berðu fram.

Gott að setja ferska basilíku yfir hvern disk ásamt rifnum parmesan-osti. Með þessu er gott að hafa hvítlauksbrauð eða nan brauð ásamt fersku salati.

Fáðu áskrift til að lesa

Heimilisblaðið hefur gagnsemi og fegurð að leiðarljósi. Áskrift fæst fyrir aðeins 490 krónur á mánuði.


Helga með moltuna sína - Heimilisblað
Grein

„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

Húsnæði hús seyðisfjörður fasteignir húsnæðislán
Fjármál

Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin

shutterstock_1810820188
Grein

Spennandi grillbúnaður fyrir sumarið

útilega sumar 2017
Grein

5 ráð fyrir umhirðu garðplanta