
Árið 2024 ákváðu tvær fjölskyldur í parhúsi á Kársnesi í Kópavogi að taka sig saman og byggja hænsnakofa og gerast hænsnabændur miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Önnur fjölskyldan er nú flutt til Ítalíu, en fjölskylda Sigrúnar Skaftadóttur er enn á svæðinu ásamt hænunum Gullbrá, Hlýju, Snjólaugu, Línu og Sól, hundinum Röskvu og kettinum Pöndu. Sigrún, sem er nýbúin að selja bróður sínum rekstur veitingastaðarins Krónikunnar í Gerðarsafni, er plötusnúður, móðir og dýravinur sem stefnir á háskólanám í haust.
Sveitastemning í borg
Sigrún og fjölskylda hennar bjuggu áður í miðbæ Reykjavíkur og eftir að þau fluttu í Kópavoginn sáu þau hjónin strax fyrir sér að hægt væri að nýta garðinn í meira en ræktun á plöntum. Garðurinn er flennistór, bæði fyrir framan og aftan við húsið. „Við maðurinn minn, Axel Aage Schiöth, erum algjört dýrafólk í grunninn. Þegar við fluttum hingað hugsuðum við að þessi lóð væri fullkomin fyrir hænur. Svo tók tengdapabbi upp á því að fara að rækta hænur. Eftir að hann hætti að vinna sem dýralæknir ákvað hann að fara að rækta hænur og kynbæta. Þær eru í hesthúsi innan bæjarmarka á Akureyri og hann fékk styrk frá Matvælasjóði til þess að kynbæta Sussex og Lohmann hænur. Þær fljúga ekkert hátt, eru frekar stórar og mjög gæfar, vinalegar og þær framleiða frekar mikið af eggjum. Það lá bara við að fá hænur frá honum. Það var spennandi verkefni sem við fórum í með gömlu nágrönnum okkar. Við sóttum um leyfið saman. Eftir að þau fluttu sendum við þeim reglulega myndir af hænunum. Það er frekar krúttlegt að ná að halda í vinskap í gegnum hænurnar.“ Sussex og Lohmann hænur Sigrúnar verpa að meðaltali einu eggi á dag á kaldari mánuðum ársins en það getur farið upp í tvö á dag þegar hlýrra er í veðri.
