
Hver er þinn bakgrunnur?
Ég fékk snemma áhuga á arkitektúr og eyddi ófáum stundum á teiknistofunni með pabba en hann var byggingafræðingur og vann lengi á Teiknistofunni Óðinstorgi. Þar fylgdist ég með þegar heilu húsin voru hönnuð og ákvað að þegar ég yrði stór þá myndi ég vilja vera innanhússarkitekt og setti mér það markmið að einn daginn myndi ég láta þann draum rætast.
Eftir tvö ár í Verslunarskóla Íslands fór ég í Iðnskólann í Reykjavík og kláraði tækniteiknun, tók mér svo nokkurra ára pásu frá námi en settist svo aftur á skólabekk árið 2000 og fór þá í Iðnskólann í Hafnarfirði á hönnunarbraut.
Í framhaldinu sótti ég svo um innanhússarkitektanám við IED í Mílanó á Ítalíu, komst inn og flutti þangað með mann og hóp af börnum.
Þar kláraði ég innanhússarkitektúr með hæstu einkunn sem gefin er þar, eða 30 cum laude. Strax þar á eftir tók ég RSP Master í innanhússhönnun og útskrifaðist í lok árs 2008. Eftir það lá leiðin heim til Íslands aftur og hef ég starfað sem innanhússarkitekt síðan við hin ýmsu verkefni. Árið 2009 hannaði ég snaga úr íslensku fjörugrjóti sem lengi var í framleiðslu hjá danska fyrirtækinu Normann Copenhagen.
Hver heldur þú að verði stærstu trendin í innanhússhönnun árið 2026 og af hverju?
Stærstu trendin árið 2026 held ég að verði tengd náttúrunni. Hlýir, mattir litir mögulega í dekkri tónum, meiri viður í mildum litum en verið hefur undanfarið í innréttingum og húsgögnum. Áferð, t.d. í veggfóðrum og áklæðum og meiri tenging við umhverfið og náttúruna innandyra í formum, efnis- og litavali og einnig lýsingu. Þægindi held ég að verði líka eitt af trendunum og smá svona kósíheit.
Hvernig tengir þú rými við lífsstíl notandans?
Þegar ég hanna rými hef ég kúnnann í huga, hvernig lífsstíl hann kýs og reyni eftir bestu …



