1
Grein

5 ráð fyrir umhirðu garðplanta

2
Fjármál

Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin

3
Veggurinn

Það skiptir öllu máli að hafa fallega list í kringum sig

4
Grein

„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

5
Grein

„Hver dagur er gleði“

6
Grein

Fæ mikið út úr því að hjálpa fólki

7
Grein

Ánægður garðeigandi einkennir góðan garð

8
Grein

Pelargónía hreinsar loft og kryddar kökur

Til baka

Grein

Tímalaus sveitaþokki við Miðjarðarhafið

Innblástur frá Suður-Frakklandi birtist í hlýjum litum, náttúrulegum efnum og arkitektúr sem sameinar sveitastíl og Miðjarðarhafsáhrif með glæsileika og ró.

Miðjarðarhafsloftslagið ... þar sem sólin skín að meðaltali um 300 daga árlega. Þegar sumarið er fram undan getur mann ekki annað en dreymt um Suður-Frakkland, þar sem eru sólríkar strendur, krúttleg kaffihús og veitingastaðir, flóamarkaðir og fallegar byggingar. Þetta svæði er eftirsóttur staður að heimsækja vegna fjölbreytileika síns, lavander-akra, höfuðborgar ilmvatnsiðnaðarins, vínekra og gönguferða.

Svæðið býður upp á fjölbreytt landslag þar sem Miðjarðarhafsströndin mætir gróðursælum sveitasjarma, stórkostlegum og fallegum fjöllum, þar sem útsýnið nær alla leið til Alpanna.

Þorpin í klettunum og hæðunum mynda skemmtilegan rytma og efniviðurinn í húsunum blandast fallega við gróðurinn og háu trén allt um kring. Svæðið býður auðvitað upp á fjölbreytt úrval eigna, allt frá sögufrægum steinbæjum til glæsilegra villa. Byggingarlistin í Suður-Frakklandi er fjölbreytt og mótast mikið af Miðjarðarhafsloftslaginu, fallegu og litríku landslagi meðfram Miðjarðarhafsströndinni, þar sem er að finna líka fornar rómverskar rústir.

Ef við tölum um innanhússstílinn á heimilum á þessu svæði þá eru þau undir áhrifum frá aldagamalli byggingarlist og eftirsótt fyrir þægilegt og fagurt umhverfi. Hvort sem þú ert á Rivíerunni, í Provence eða í sveitum Occitanie er stíllinn tímalaus, stílhreinn og sjarmi fortíðarinnar rennur saman. Híbýlin eru þekkt fyrir látlausa og afslappandi stemningu, heillandi smáatriði og mildir litir fá að njóta sín með léttum og gegnsæjum efnum svo sólarljósið nái að skína sem best inn. Mörg hús á þessu svæði eru steinhlaðin með þykkum veggjum sem heldur húsunum kaldari á sumrin. Mikil áhersla er lögð á huggulegt útisvæði og að flæðið sé gott milli inni- og útirýmis.

Flísar og viðargólf eru klassísk gólfefni á þessu svæði og vinsælt að nota ljósbrúnar eða terracotta flísar, oft reynt að halda í gamla tímann og efniviðnum leyft að eldast fallega bæði á gólfi og veggjum. Grófir og hlaðnir veggir með upprunalegum loftbitum er ómissandi partur á mörgum heimilum, loftin þá yfirleitt máluð …

Fáðu áskrift til að lesa

Heimilisblaðið hefur gagnsemi og fegurð að leiðarljósi. Áskrift fæst fyrir aðeins 490 krónur á mánuði.


Helga með moltuna sína - Heimilisblað
Grein

„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

Húsnæði hús seyðisfjörður fasteignir húsnæðislán
Fjármál

Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin

shutterstock_1810820188
Grein

Spennandi grillbúnaður fyrir sumarið

útilega sumar 2017
Grein

5 ráð fyrir umhirðu garðplanta