
Áslaug Íris fæddist árið 1981 í Reykjavík. Hún lauk B.A.-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og M.F.A.-gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áhuginn á myndlist kviknaði snemma hjá Áslaugu en hún segist hafa verið alin upp við myndlist í kringum sig og að hún hafi haft unun af að velta henni endalaust fyrir sér. Hún telur mjög mikilvægt að hafa fallega myndlist í kringum sig, myndlistin hafi sitt eigið tungumál líkt og tónlistin sem hægt sé að upplifa í gegnum tilfinningar og skynjun.
„Verk mín einkennast af ríkri efniskennd. Ég leita merkingar í fjölbreyttu efnisvali og aðferðum. Ég notast við þung efni eins og fúgu og steina sem framkalla jarðtengingu í mótvægi við óhlutbundið myndmál og oft og tíðum loftkennda fagurfræði verkanna. Höfuðviðfangsefni verka minna er skynjun okkar og marglaga sjónarhorn. Hvernig við skynjum tíma í margvíslegum skilningi og víddirnar í kringum okkur, raunverulegar og huglægar.“
Setur listaverk á nýja staði og fær nýja upplifun
Liturinn á innvegg í stofu Áslaugar er fölblár, það er varla hægt að sjá blámann nema að sjá eitthvað hvítt við að sögn Áslaugar, en aðrir veggir stofunnar eru dökkgrænir.
Verkin
- Áslaug Íris Friðjónsdóttir - Verkið er frá árinu 2025. Blönduð tækni.
- Bernd Koberling - Vatnslitur.
- Steinaverk úr Kolaportinu - Höfundur óþekktur.
Hvað geturðu sagt mér um þennan vegg, heildrænt og svo listaverkin á honum? „Þetta er eiginlega aðalveggur stofunnar og hér fyrir framan arininn er miðpunktur íbúðarinnar. Á móti veggnum er gólfsíður gluggi og tveir setustólar. Ég sest með morgunbollann minn í annan þessara stóla á hverjum degi og horfi út í garð og líka á vegginn og verkin sem hanga þar hverju sinni, mér finnst það virkilega notalegt. Verkin á veggnum eru vatnslitamynd eftir Bernd Koberling, sem ég …