

Töfrasproti sem gerir allt Töfrasproti er í uppáhaldi hjá mörgum, en hann má nota til margra hluta eins og að mauka grænmeti í súpur, þegar tekið er til í ísskápnum, eða afgangar notaðir og matur sem er kominn á síðasta snúning. Eins er gott að mauka mat ofan í ungbörn. Þessi töfrasproti er nýr og tekur matseldina á næsta stig. Hann er frá fyrirtækinu Bamix og mótorinn er 300 w, hann hefur mikinn snúningskraft og er einstaklega öflugur. Töfrasprotinn hakkar, þeytir, hrærir, maukar grænmeti, ávexti, en einnig kjöt o.fl. Á töfrasprotanum eru tvær hraðastillingar og honum fylgir mismunandi búnaður til að nota á matinn. Kokka, 42.900 kr.

Heimgerðar pitsur eru alltaf einstaklega góðar en hér er pitsusteinn sem gerir deigið afar gott því steinninn dregur í sig raka úr deiginu þannig að skorpan verður stökk, eins og við viljum hafa hana. Pitsusteinninn er gerður úr efni frá eldfjallinu Etnu á Ítalíu en hann má nota á hellu og grill. Á honum er hægt að elda fleira en pitsu, eins og kjöt og fisk. Steinninn er 38 x 30 x 1,5 cm og kemur með spaða. Kokka, 9.900 kr.

Avókadóskerinn frá Brix er sniðugt áhald em gott er að eiga í eldhúsinu, hann er þægilegur og einfaldur í notkun. Með hnífnum sem er fremst öðrum megin sker maður lárperuna, tekur svo steininn úr með miðhluta hnífsins, en neðsti hlutinn er til að skera lárperuna í sneiðar. Nauðsynlegur fyrir þá sem borða mikið lárperu. Líf og list, 2.530 kr.

Áhaldahvíla er þarfaþing í eldhúsinu. Þessi er frá Be Home og er úr marmara. Það lekur úr sósunni á einn stað og ekkert fer á borðið. Vörur frá Be Home eru handunnar og sjálfbærar. Snyrtilegt og þægilegt. Líf og list, 6.850 kr.

Fallegur olíulampi frá Stelton á pallinn eða í bústaðinn á sumarkvöldum. …