
Grillspjót á standi er gott að eiga fyrir sumarið. Það eru sex spjót á standinum og þægilegt að nota í stað þess að leggja á fat en þá getur bæði krydd og marinering losnað af og lekið niður í eldinn. Standurinn er bæði mjög hentugur og þrifalegur auk þess sem mun auðveldara er að grilla matinn sem er á spjótunum á þessum standi. Auðvelt að snúa spjótunum og tryggja jafna og góða eldun. Hvert spjót er 33 cm að lengdLíf og list, verð, 11.290 kr.
https://www.lifoglist.is/vorur/grillspjot-a-standi-6-stk.-24009r25072
Ninja Woodfire-ferðarafmagnsgrill og reykofn
Ninja Woodfire er marghliða ferða-rafmagnsgrill og reykofn sem einnig má nota sem Airfryer. Í grillinu er hægt að baka, þurrka, sjóða mat og brúna. Grillinu fylgja tveir pakkar af viðarperlum sem gefa ekta viðarreykbragð af matnum en grilliið eða reykofninn er með innbyggt reykbox þar sem viðarperlurnar eru settar. Snilldartæki á góðu verði fyrir sumarið. Byggt og búið, verð, 59.995 kr.
https://byggtogbuid.is/ooni-woodfire-ferda-rafmagnsgrill-og-reykofn.html
Fox Run-grillljós með segli
Margir þekkja það að þurfa að grilla í myrkri og grípa til símans en það er ekki handhægt. Þessum litla grilllampa er auðvelt að skella á hliðarborð grillsins og beygja og sveigja að vild. Undir honum er segull sem festir hann þar sem maður vill. Grilllampinn er 28 cm langur, með 15 LED perum og gefur mikla birtu.
Byggt og búið, verð, 3.995 kr.
https://byggtogbuid.is/fox-run-grill-ljos-m-segli.html
Grillmotta frá KuchenProfi kemur í veg fyrir að þrífa þurfi grillið eftir hverja notkun og að það kvikni til dæmis í fitunni af kjöti og grillið helst hreint. Henni er svo bara rennt undir heitt vatn og þá er hún tilbúin fyrir næstu eldun á grillinu. Í pakkanum eru tvö stykki og grillmottan er viðloðunarfrí. Grilla má allan mat á henni. Það má
einnig nota hana sem fjölnota bökunarmottu.
Stærð: 40 x 50 cm. Hitaþolin upp að 260 …