Hvítmálað hús í póstnúmeri 105 í Reykjavík. Þrjár íbúðir eru í húsinu og býr Áslaug í íbúðinni á efstu hæðunum tveimur ásamt eiginmanni sínum, Sacha Tueni og syni þeirra, Ocean þegar hún er í Reykjavík. Hvítmálaðir veggir og listaverk eftir bandaríska arkitektinn, listamanninn og skartgripahönnuðinn John Brevard skreytir vegginn upp stigann. Ævintýraleg fegurð.
Við Áslaug setjumst inn í eldhús þar sem hvíti liturinn er allsráðandi. Stórt málverk skartar bæði hvítum og svörtum lit.
Áslaug, sem búsett var í Kaliforníu frá fimm til ellefu ára aldurs, er lögfræðingur frá Háskóla Íslands auk þess að hafa lokið meistaranámi í lögfræði frá Duke og MBA-námi frá Harvard-háskóla. Eftir útskrift fór hún að vinna hjá McKinsey í London sem þýddi að hún ferðaðist víða um heim. Hún hóf síðar störf hjá Baugi í London og átti þátt í miklum uppgangi fyrirtækisins og á þeim tíma byrjaði hún að tengjast tískuheiminum og fjárfesta í tískumerkjum. Svo flutti hún til New York og stofnaði ásamt Marvin Traub og Mortimer Singer TSM Capital þar sem lögð var áhersla á fjárfestingar í ungum, lofandi fatamerkjum. Mortimer kynnti hana fyrir Lauren Santo Domingo og nokkrum árum síðar stofnuðu þær tvær Moda Operandi sem er hugmynd Áslaugar. Upp úr því samstarfi slitnaði og Áslaug stofnaði Tinker Tailor. Í báðum tilfellum er um að ræða nýsköpunarfyrirtæki í tískubransanum. Síðarnefnda fyrirtækið var starfrækt í tvö ár en Moda Operandi er alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar með um 700 hönnuðum.
Árið 2013 var Áslaug valin ein af 50 valdamestu einstaklingum í tískuheiminum af …




