
Kaffibrennslan, sem er á horni Laugavegs og Klapparstígs, býður upp á jólaglögg og lætur nokkrar piparkökur fylgja í kaupbæti. Á staðnum er boðið upp á létta rétti og bakkelsi og hægt er að sitja bæði inni og úti í gróðurhúsinu. Munið bara að súpa jólaglöggið hratt til að ylja ykkur að innan ef þið veljið að sitja úti.
Á Rósenberg, sem er til húsa á Vesturgötu 3, er boðið upp á bragðgott jólaglögg með möndluflögum og rúsínum. Eins og á Kaffibrennslunni er boðið upp á piparkökur með glögginu. Þar er afar kósí að vera og tilvalið fyrir þau sem vilja hlýja sér í huggulegu umhverfi eftir gott bæjarrölt.
Veitingastaðurinn Bastard á Vegamótastíg býður upp á hlýlega og „rustic“ stemningu. Þar er hægt að fá mat og drykki af ýmsu tagi og staðurinn tekur virkan þátt í hvers kyns hátíðum. Jólin eur þar að sjálfsögðu ekki undanskilin, en Bastard býður upp á jólaglögg og nokkra jólalega kjötrétti til þess að gæða sér á.
Á veitingastaðnum Sæta svíninu við Ingólfstorg getur þú fengið jólaglögg. Staðurinn er afar vinsæll fyrir kvöldverði, hádegisverði og bröns um helgar. Hvað er betra en heitt jólaglögg eftir góða máltíð, eða glögg með eftirréttinum? Ekkert.
Vínstúkan, eða Tíu sopar, eins og sumir kalla kjallarann fræga á Laugavegi 27, þar sem kaffihúsið Tíu dropar var áður til húsa, mun bjóða upp á ljúffengt jólaglögg í desember. Staðurinn er oftast þéttsetinn á kvöldin, en hann býður upp á spennandi náttúruvín frá öllum heimshornum, góða smárétti og kósí andrúmsloft.
Barinn Veður, sem kalla mætti Veðurbarinn, lætur sér ekki nægja að bjóða bara upp á jólaglögg í desember. Auk glöggsins góða, verða þrír aðrir heitir drykkir á boðstólum. Einn þeirra kallast „brown buttered-rum“, annar …



