1
Grein

5 ráð fyrir umhirðu garðplanta

2
Fjármál

Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin

3
Veggurinn

Það skiptir öllu máli að hafa fallega list í kringum sig

4
Grein

„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

5
Grein

„Hver dagur er gleði“

6
Grein

Fæ mikið út úr því að hjálpa fólki

7
Grein

Ánægður garðeigandi einkennir góðan garð

8
Grein

Pelargónía hreinsar loft og kryddar kökur

Til baka

Grein

Háar og tignarlegar brúðartertur

Brúðartertan er almennt punkturinn yfir i-ið þegar kemur að veitingunum í brúðkaupsveislunni. Í dag eru brúðartertur á nokkrum hæðum vinsælar og eru gjarnan látnar standa frammi alla veisluna. Einn viðmælandi sagði að brúðhjón líti oft svo á að um sýningargrip sé að ræða.

Brúðkaupsblað - brúðartertur - 17 sortir
Há og tignarlegBrúðarterta frá 17 sortum.

„Við notum hágæðahráefni og gerum hlutina frá grunni; við notum annars gjarnan íslensk hráefni og við viljum að varan sem fer út frá okkur sé eitthvað sem við erum stoltar af og okkur sjálfum þykir vera góð,“ segir Sylvía Haukdal, annar eigenda hjá 17 sortum. „Við erum með brúðarterturáðgjöf þannig að við mælum með að tilvonandi brúðhjón komi og setjist niður með okkur og fari yfir þetta og fái svo smakk með sér heim. Við einblínum á að gera þetta persónulegt fyrir þau sem eru að panta kökuna og að þau séu að fá eitthvað sem höfðar til þeirra.“

Brúðkaupsblað - brúðartertur - 17 sortir
17 sortir

Sylvía segir að tilvonandi brúðhjón séu spurð út í matinn í veislunni. „Ef það verður þungur matur í boði, eins og steik, þá ráðleggjum við fólki að hafa léttari fyllingu í eftirrétt, svo sem lemoncurd eða ljósari botna af því að súkkulaðitertan er þyngri.“

17 sortir er með fjórar mismunandi bragðtegundir fyrir brúðartertur.

Fyllingar á ljósari botna er annars vegar hvít súkkulaðimousse, kampavínsganache og jarðarber og hins vegar hvít súkkulaðimousse, lemoncurd og ylliblómaextract.

Fyllingar á dökka botna er annars vegar belgísk súkkulaðimousse með hindberjum og hins vegar frappuccinomousse með Baileys og karamellu.

„Ef fólk sem pantar hjá okkur brúðartertu og kemur í ráðgjöf fílar til dæmis ekki hindber þá leyfum við því að setja sína köku saman.“

Brúðkaupsblað - brúðartertur - 17 sortir
17 sortir

Sylvía segir að flestir kjósi ljósar brúðartertur en að þær séu svo skreyttar í ýmsum litum. „Ef þær eru skreyttar með blómum þá eru þær skreyttar í stíl við brúðarvöndinn og skreytingarnar.“ Þeir sem velja að hafa terturnar í öðrum litum velja hina ýmsu liti. Bakaðar hafa verið meðal annars svartar og rauðar tertur og ein var með 80s-þema og …

Fáðu áskrift til að lesa

Heimilisblaðið hefur gagnsemi og fegurð að leiðarljósi. Áskrift fæst fyrir aðeins 490 krónur á mánuði.


Helga með moltuna sína - Heimilisblað
Grein

„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

Húsnæði hús seyðisfjörður fasteignir húsnæðislán
Fjármál

Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin

shutterstock_1810820188
Grein

Spennandi grillbúnaður fyrir sumarið

útilega sumar 2017
Grein

5 ráð fyrir umhirðu garðplanta