
„Ég ólst upp við mjög góðan mat. Mamma lagði alla tíð mikið í að búa til góðan mat, er ofboðslega góður kokkur og hafði mikinn metnað fyrir að taka vel á móti fólki. Þegar pabbi var bæjarstjóri í Bolungarvík tók hann heim alls konar framámenn úr þjóðlífinu, innlenda og erlenda. Hann kannnski hringdi og sagði: Heyrðu, ég er með sjö þingmenn, geturðu ekki tekið á móti okkur í hádegismat? Þetta var oft fólk sem átti kannski erindi vestur. Mamma lagði alltaf vel í matargerðina og maturinn var ekki bara góður, hann var líka mjög fjölbreyttur. Svo er ég alin upp við að fá fiskinn spriklandi ferskan beint í pottinn þannig að ég er pikkí á allan fisk. Ég hringi oft í mömmu og spyr hana hvernig ég eigi að snúa mér með ákveðna hluti í matargerðinni og hún hefur verið mér mjög mikill kennari í þessu. Minnisstæðasti rétturinn frá æskuheimili mínu er fiskréttur sem mamma gerði og ég geri oft heima.
Bakaður fiskur í ofni
Uppskrift:
700 g þorskur eða ýsa
hrísgrjón, soðin
rauð paprika, ananas eða mangó-chutney
salt og pipar
1/4 l rjómi
rifinn ostur
Setjið soðin hrísgrjón í botninn á ofnföstu móti og steikið síðan fiskinn á pönnu ásamt grænmetinu, kryddið með karríi og saltið og piprið og setjið rjóma út á. Setjið fiskinn og grænmetið yfir hrísgrjónin og dreifið ostinum yfir. Bakið við 200 gráður í um 15–20 mínútur.
Frá Bolungarvík til Hollywood
Edda fór að heiman ung og fór í tónlistarnám í Reykjavík. „Ég kynntist Bjarna Sveinbjörnssyni, manninum mínum, mjög fljótlega eftir að ég kom suður, hann var að læra á bassa og er bassaleikari. Við giftum okkur fljótlega, ég var bara 17 ára, en það var ástæða fyrir því sem var sú að hann var á leiðinni til Hollywood og ég ætlaði með honum. Við …