1
Grein

5 ráð fyrir umhirðu garðplanta

2
Fjármál

Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin

3
Veggurinn

Það skiptir öllu máli að hafa fallega list í kringum sig

4
Grein

„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

5
Grein

„Hver dagur er gleði“

6
Grein

Fæ mikið út úr því að hjálpa fólki

7
Grein

Ánægður garðeigandi einkennir góðan garð

8
Grein

Pelargónía hreinsar loft og kryddar kökur

Til baka

Grein

Ánægður garðeigandi einkennir góðan garð

Björn Jóhannsson er landslagsarkitekt og eigandi Urban Beat. Hann segir heilsutengd svæði, útieldhús og umhverfisvæn sjónarmið ráðandi í garðhönnun í dag.

Þrívíddargarður
GarðurHjá Urban Beat er þrívíddartækni notuð við garðhönnun. Hún gerir viðskiptavinum kleift að skilja teikningarnar betur og hanna sinn draumagarð.
Mynd: Björn Jóhannsson

Björn Jóhannsson er lærður landslagsarkitekt frá Bretlandi og eigandi Urban Beat, fyrirtækis sem sérhæfir sig í hönnun. Samkvæmt honum eru heilsutengd svæði, matargerð utandyra og umhverfisvæn sjónarmið áberandi í garðhönnun. Það er einnig að verða vinsælt á nýjan leik að vera með grasflöt í garðinum. „Það þarf ekki allt að vera í pöllum og stéttum. Það má skipuleggja grasflötina þannig að það sé búið til gott umhverfi á og í kringum grasflöt,“ segir Björn.

Sýndarveruleiki í garðhönnun

Hjá Urban Beat er sýndarveruleiki notaður við garðhönnun. Ferlið virkar þannig að Björn hittir garðeigendur, fær upplýsingar um óskir þeirra og tekur myndir af svæðinu. „Ég er með öpp þar sem ég 3D skanna lóðina og fæ myndir þar sem ég get séð hvernig sólargangur er,“ útskýrir Björn. Þessi tækni gerir honum kleift að hanna garðana með góðri rýmisnýtingu.

Bjorn joh
LandslagsarkitektBjörn Jóhannsson er landslagsarkitekt. Hann segir ánægðan garðeiganda einkenna góðan garð.
Mynd: Björn Jóhannsson

Björn leggur áherslu á að í ferlinu geti fólk skipt um skoðun. „Ég vinn þetta í tveimur til þremur skrefum. Á milli skrefa eitt og tvö, þar áttu að breyta,“ segir landslagsarkitektinn. „Ég myndi segja að það mikilvægasta í þessari teiknivinnu sé að hönnuður og garðeigandinn vinni saman, og að það sé svigrúm til að breyta frá fyrstu tillögu.“

Sýndarveruleikinn hefur hjálpað mikið til við hönnunarferlið enda gerir hann garðeigendum auðveldara með að skilja teikningarnar. „Ef maður gerir þetta á gamla mátann þar sem er bara grunnmynd, þá er erfitt að skynja stærðir,“ segir Björn. Þrívíddin einfaldar ferlið því töluvert.

Image13
ÚtieldhúsÞað er vinsælt að vera með útieldhús í garðinum svo hægt sé að stunda matargerð utandyra.
Mynd: Björn Jóhannsson

Ánægður garðeigandi

Umhverfisvæn sjónarmið skipta orðið meira …

Fáðu áskrift til að lesa

Heimilisblaðið hefur gagnsemi og fegurð að leiðarljósi. Áskrift fæst fyrir aðeins 490 krónur á mánuði.


Helga með moltuna sína - Heimilisblað
Grein

„Ég fer út í safnkassann til þess að fá jarðtengingu“

Húsnæði hús seyðisfjörður fasteignir húsnæðislán
Fjármál

Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin

shutterstock_1810820188
Grein

Spennandi grillbúnaður fyrir sumarið

útilega sumar 2017
Grein

5 ráð fyrir umhirðu garðplanta