
Arfahreinsun
Arfahreinsun hefur almennt verið talin leiðinlegt verk en þarft samt sem áður. Ég mæli með að komast yfir allan arfa bæði fyrri part sumars og að hausti. Ef þú gefur þér korter á dag til að reyta kemstu fljótlega yfir öll beðin. Sumir garðar geyma kröfuhörð arfabeð sem gott er að hreinsa í nokkrum hollum, þ.e. taka part núna og svo bæta við parti í næstu hreinsun.
Garðsláttur
Fyrir garðslátt er gott að raka lóðina og safna laufblöðum saman. Laufblöð eru góð næring og yfirbreiðsla undir stórvaxna runna. Á meðan þú slærð garðinn er gott að velta fyrir sér hvernig má gera lóðina enn hentugri fyrir garðslátt. Að bæta við beði undir trjám eða gera horn á beði að boga getur einfaldað slátt talsvert.
Flokka áburð
Gróflega er hægt að flokka áburð í tvennt. Í fyrsta lagi þann sem þú setur undir plöntu við niðurplöntum eins og sveppamassa. Í öðru lagi þann sem þú stráir ofan á beð með rótföstum plöntum.
Sumarblóm
Þegar þú kaupir þér sumarblóm mæli ég með að planta þeim í hópa frekar en stakstætt. Ef þeim er plantað þétt saman ná þau ekki aðeins meiri athygli heldur styðja þau betur við hvert annað og það myndast minna rými fyrir arfa.
Þekjandi fjölæringar
Ef arfahreinsun vex þér í augum vil ég hvetja þig til að skoða þekjandi fjölæringa. Það eru til heilmargar tegundir sem dreifa úr sér og þekja að lokum fyrir jarðveginn. Þetta minnkar arfahreinsun og viðheldur meiri raka í beðunum svo þú þarft síður að vökva.